11.4.2008 | 12:26
Blöðrur og bólgnir fætur
Eru uppskera þess að ég labbaði með prinsinn í Perluna í gær. Við fórum að hitta sundbumburnar sem eru allar komnar með flatan maga aftur eða þannig við erum allar búnar að eiga. Ég held samt að ég eigi eftir að gera þetta aftur held bara að ég verði að kaupa mér nýja skó. Ég er ekki frá því að fæturnir á mér stækkuðu á meðgöngunni það er heví skrýtið. Einu skórnir sem ég passa í eru 2 pör sem ég keypti mér á meðgöngunni og spariskór sem ég keypti eftir að ég átti...
Þannig að ég held að ég fjárfesti í léttum gönguskóm eða íþróttaskóm til að verða ekki svona illa útileikin eftir "smá" göngutúr. Held ég fari samt ekki út að labba í dag
Sæmi var að fara hann er farinn að koma heim í hádeginu á hverjum degi svo ég drepist ekki úr leiðindum. Mér finnst voða skrýtið hvað manni getur leiðst en samt er nóg að gera
Annars er bara allt gott að frétta af okkur
Biðjum bara kærlega að heilsa öllum
Um bloggið
Álfaheimar
Tenglar
Mínir tenglar
- Gamla bloggið mitt ...og allir gömlu tenglarnir
Fjölskyldan
- Sæþór Ingi Fallegastur
- Ingimar Óli
- Margrét Júlía
- Georg Rúnar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 448
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sko ef ykkur leiðist þá erum við alltaf til í að fara út að labba (bara eftir klukkan 14 á daginn) :) en ég held að það sé búið að setja álög á mig, alltaf þegar ég er á leiðinni í heimsókn til þín þá veikist ég eða Birna María...
Annars þá bið ég bara að heilsa í bili :)
Helga Jóhanna (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 20:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.