31.3.2008 | 10:14
Ferðalag framundan
Við mæðginin ætlum að leggja land undir fót á morgun og skella okkur í dekur úti í Eyjum . Förum í Herjólf í hádeginu á morgun og ég hlakka ekkert smá mikið til en ég held að það séu fleiri sem hlakka til að fá okkur ekki margir í familyunni úti í Eyjum sem eru búnir að sjá prinsinn nema þessir nánustu.
Þannig að Arnar og Sæmi verða bara "graseklar" hérna saman fram að helgi þá koma þeir báðir til Eyja. Arnar er hér hjá okkur því hann er á námskeiði vegna nýju vinnunnar sem hann er að fara að byrja í.
Annars er bara allt gott að frétta drengurinn farinn að sofa ágætlega á nótunni og braggast segja þeir sem sjá hann ekki á hverjum degi..
Biðjum að heilsa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2008 | 10:59
Skrýtinn dagur
Í dag er fyrsti vinnudagurinn hans Sæma ég vona að við lifum það af
Verð að viðurkenna að ég er orðin ansi vön að láta hann stjana við okkur. Ég hefði allavega ekki viljað vera ein það sem af er. Þá væri ég örugglega flutt á Heiðarveginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.3.2008 | 14:12
Merkilegir páskar
...já, merkilegir af tveimur ástæðum. annars vegar fyrstu páskarnir hans Sæþórs Inga og hins vegar fyrstu páskarnir okkar Sæma sem hjón
Fyrstu páskarnir okkar með prinsinn heppnuðust bara nokkuð vel. Fyrir utan matarboðið sem okkur var boðið í og ég bara hreinlega missti af því... Jú drengurinn var svangur og ég varð að gjöra svo vel að sinna kalli hans Sem er reyndar bara allt í góðu. Við fórum með hann í vigtun í gær og gæinn búinn að þyngjast um heil 300 g á einni viku það er nú bara alveg ágætt, þannig að nú vantar bara herslumuninn að hann nái fæðingarþyngdinni aftur. Frekar seinn... annað en mamma hans
Vorum sem sagt á Hvolsvelli fyrir páska þar sem matarboðið var en aðalástæða ferðarinnar var sú að verið var að ferma systurdóttur hans Sæma. Voða flott veisla og góður matur. Allaf get ég misst mig í því að borða góðan mat
Svo komum við heim á laugardagskvöldinu og héldum páskana hérna heima mjög ljúft. Við keyptum páskaegg handa prinsinum og það rann ljúflega niður hjá okkur hjónunum og fyndið því við fengum málsháttin "Þangað fýsir elskhugann sem unnustan er" gaman að því.
Varð bara að prófa að blogga á þessu fína bloggi
Ble
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Álfaheimar
Tenglar
Mínir tenglar
- Gamla bloggið mitt ...og allir gömlu tenglarnir
Fjölskyldan
- Sæþór Ingi Fallegastur
- Ingimar Óli
- Margrét Júlía
- Georg Rúnar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 448
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar