Blöðrur og bólgnir fætur

Eru uppskera þess að ég labbaði með prinsinn í Perluna í gær. Crying Við fórum að hitta sundbumburnar sem eru allar komnar með flatan maga aftur eða þannig við erum allar búnar að eiga. Ég held samt að ég eigi eftir að gera þetta aftur held bara að ég verði að kaupa mér nýja skó. Ég er ekki frá því að fæturnir á mér stækkuðu á meðgöngunni það er heví skrýtið. Einu skórnir sem ég passa í eru 2 pör sem ég keypti mér á meðgöngunni og spariskór sem ég keypti eftir að ég átti...

Þannig að ég held að ég fjárfesti í léttum gönguskóm eða íþróttaskóm til að verða ekki svona illa útileikin eftir "smá" göngutúr. Held ég fari samt ekki út að labba í dagWink

Sæmi var að fara hann er farinn að koma heim í hádeginu á hverjum degi svo ég drepist ekki úr leiðindum. Mér finnst voða skrýtið hvað manni getur leiðst en samt er nóg að geraUndecided

Annars er bara allt gott að frétta af okkur

Biðjum bara kærlega að heilsa öllum

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sko ef ykkur leiðist þá erum við alltaf til í að fara út að labba (bara eftir klukkan 14 á daginn) :) en ég held að það sé búið að setja álög á mig, alltaf þegar ég er á leiðinni í heimsókn til þín þá veikist ég eða Birna María...

Annars þá bið ég bara að heilsa í bili :)

Helga Jóhanna (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Álfaheimar

Höfundur

María Sif
María Sif

Ég er stelpa, dóttir, litla systir, fimmföld stóra systir, móðursystir, föðursystir, frænka

Ég er 24ra ára hamingjusöm eiginkona og móðir

Ég elska að taka myndir af vinum og vandamönnum

Ég er mágkona, svilkona og tengdadóttir

Ég er barnabarn og barnabarnabarn

Ég elska að horfa á sjónvarpið

Ég er stolltur kattareigandi

Ég er vinkona og kunningi

Ég er með göt í eyrunum

Ég er með tvö tattoo

Ég elska mat

Ég er

Ég

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 00301034
  • 053
  • 037
  • Sætastur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 159

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband